Uppgjör eftir 12 leiki

0
568

Ritstjórar spurs.is hafa tekið sig saman og gert uppgjör eftir fyrstu 12 leiki tímabilsins. Byrjunin á tímbilinu hefur verið prýðileg og ein sú besta í nokkur ár. Við gáfum öllum leikmönnum einkunnir og völdum þann leikmann sem staðið hefur upp úr það sem af er.

Mestu vonbrigðin: 1-0 tapið gegn Grimsby í 2. umferð deildabikarsins. Þessi leikur var skelfilegur frá öllum sjónarhornum. Leikmennirnir mættu ekki og sýndu engan sigurvilja en sem betur fer var þessi leikur fljótt gleymdur og þeir sneru blaðinu við næsta leik.

Hver hefur komið mest á óvart: Aaron Lennon. Hann kom eins og þruma úr heiðskíru lofti inn í liðið og veitti því aukinn kraft í sóknarleikinn. Hann er aðeins 18 ára og hann mun bara verða betri leikmaður á næstu árum. Hann mun þó kannski ekki leika jafn stórt hlutverk í liðinu þegar Routledge nær sér af meiðslum sínum. En hann er fyrst og fremst maður fyrir framtíðina.

Besti leikmaður: Við gátum ekki gert upp á milli Ledley King og Michael Dawson. Þeir hafa verið frábærir saman í miðri vörninni og ekki stígið feilspor hingað til. Það er ótrúlegt að hugsa til þess að fyrir ári var Dawson að spila fyrir Nottingham Forest sem sýnir bara hvað honum hefur farið mikið fram. King hefur hins vegar fest sig í sessi sem fyrirliði Spurs og spilar ávallt vel. Þessir tveir geta verið varnarpar Spurs næstu árin ef þeir vilja.

Hérna eru síðan einkunnir fyrir hvern og einn leikmann sem hefur spilað fyrir Spurs á þessu tímabili.

Paul Robinson: Búinn að standa sig vel það sem af er. Var samt örlítið óöruggur á tímabili, en frábær leikur með Englandi sýndi að hann er í góðum gír. 8/10

Noureddine Naybet: Hefur ekki komið mikið við sögu og staðið sig ágætlega þegar þess hefur verið þörf. Hann er greinilega varamaður sem Jol mun bara nota í neyð. 6/10

Stephen Kelly: Hefur ekki fengið mörg tækifæri en litið mjög vel út þegar hann hefur komið inn á. Skrítið að hann sé ekki að pressa meira á Stalteri. 5/10

Sean Davis: Kom inn á gegn Grimsby en það er nokkuð ljóst að hann mun færa sig um set í janúar. Hefur í raun verið óheppinn með meiðsli en hann ætti samt ekki séns á sæti í liðinu. 5/10

Edgar Davids: 4 gul í fyrstu 4 gaf manni einhverja hugmynd um það hvað hann myndi gefa liðinu! Tilkoma hans hefur látið miðjuna líta mikið betur út og þar að auki hefur hann frábær áhrif á alla leikmenn liðsins. Hefur farið fram úr vonum flestra. 9/10

Teemu Tainio: Stóð sig vel í fyrstu leikjum tímabilsins en hefur þurft að sitja á bekknum síðan Jenas kom. Góður leikmaður sem gefur alltaf 100%. 7/10

Paul Stalteri: Eini útileikmaðurinn sem hefur spilað alla leikina, líkt og Robbo. Hann hefur verið svolítið “shaky” í síðustu leikjum en hefur ekki enn gert mistök. Búist við því að hann þurfi að berjast fyrir sæti sínu þegar líður á tímabilið. 7/10

Pedro Mendes: Ekki fengið mörg tækifæri og mun væntanlega leita á önnur mið í janúar. Hefur ekki enn spilað slæman leik fyrir Spurs og mun ekki gera mistök ef hann kemur inn í liðið.  6/10

Gregorz Rasiak: Það hefur verið viðurkennt að hann hafi verið keyptur á elleftu stundu og í þeim þremur leikjum sem hann hefur spilað hefur hann ekki sýnt mikið. Mun ekki vera mikið með nema Mido meiðist. 5/10

Robbie Keane: Hefur verið stimplaður sem “super-sub” af mörgum. Þó að hann viðurkenni það ekki er hann mjög pirraður á bekknum. Hefur reddað liðinu tvisvar(Villa og Charlton) Býst samt ekki við því að hann fari í janúar. Ef hann fær nokkra leiki í röð gæti hann blómstrað. 7/10

Michael Brown: Líkt og margir hefur hann ekki fengið marga leiki. Mun vera áfram hjá félaginu því að Jol metur hann mikils. 4/10

Mido: Var frábær á tímabili en hefur dalað svolítið í síðustu leikjum, er samt markahæstur ásamt Defoe. Enginn vafi er um hæfileika hans en hann þarf bara að gera sitt besta í hverjum leik. Getur bara orðið betri. 7/10

Young-Pyo Lee: Kóreumaðurinn sem keyptur var frá PSV hefur staðið sig mjög vel. Salan á Edman kom á óvart en þessi maður hefur sýnt að hann er Tottenhamleikmaður. Sókndjarfur en þarf samt að bæta sig varnalega séð. Góð byrjun. 7/10

Jermain Defoe: Byrjaði tímabilið með látum og var óstöðvandi en hefur ekki skorað síðan 26. september. Er reyndar búinn að vera óheppinn með rangstöður en hann verður að vera inn á því að hann er náttúrulegur markaskorari. Mun skora 15-20 á tímabilinu. 8/10

Andy Reid: Hefur verið gagnrýndur af sumum aðdáendum Spurs á þessu tímabili. Hann er eini vinstri kantmaðurinn eftir að Ziegler fór í lán. Hefur ekki sýnt sitt besta og sagt er að Jol líki ekki vel við hann. Getur gert betur og mun þurfa að gera betur, annars verður hann seldur fljótlega. 5/10

Michael Dawson: Búinn að vera hreint út sagt frábær við hlið Ledley King. Hefur ekki gert ein einustu mistök og spilar alltaf með bros á vör. Hann og King gætu verið varnarkjölfesta framtíðarinnar. 9/10

Wayne Routledge: Spilaði fyrsta leik tímabilsins og stóð sig frábærlega. Var búinn að vera besti maður Spurs á undirbúningstímabilinu. Mun væntanlega lífga upp á sóknarleikinn þegar hann snýr aftur úr meiðslum. 5/10

Michael Carrick: Hefur átt mjög gott tímabil hingað til. Er greinilega einn af lykilmönnum Jol og réttilega svo. Aðdáendur Spurs hafa skiptar skoðanir um hann en því verður ekki neitað að hann hefur þroskast gífurlega á einu ári. Verður í HM hópi Englendinga. 9/10

Aaron Lennon: Stökk fram á sjónarsviðið þegar Routledge meiddist og hefur andað fersku lofti á alla í liðinu. Það sést að hann er óreyndur og ekki nógu líkamlega sterkur, en það kemur bara með árunum – hann er á 18. ári. Hann mun væntanlega vera oftar á bekknum þegar Routledge kemur aftur, en hann er maður sem getur breytt leikjum. 8/10

Ledley King: Fyrirliði félagsins hefur verið klettur í vörn og sókn síðan hann kom úr meiðslum. Hefur líka spilað með Englandi og mun án efa fara á HM. Hann er frábær fyrirmynd og kemur alltaf frábærlega fram. Vonandi verða hann og Dawson án meiðsla allt tímabilið því að vörnin er mjög sterk í augnablikinu. 9/10

Jermaine Jenas: Var skelfilegur í fyrstu leikjum sínum en sneri dæminui við í hálfleik gegn Everton. Hefur verið góður síðan þá og markið á Old Trafford var bara snilld. Hann er samt ekki enn búinn að koma sér nógu vel fyrir en hefur samt skorað 2 mörk sem er óvenjumikið fyrir miðjumann hjá Spurs þessa dagana. 7/10

Anthony Gardner: Var búinn að koma virkilega á óvart þangað til hann meiddist. Hann mun samt væntanlega ekki komast í liðið þegar hann kemur til baka úr meiðslunm. 7/10