Tottenham tilkynnti í dag að félagið hefði gengi frá kaupum á hollenska landsliðsmanninum Rafael van der Vaart frá Real Madrid. Félagaskiptaglugga leikmanna lokaði kl.17 að íslenskum tíma í gær og stuttu fyrir þann tíma bárust fréttir þess efnis að Tottenham væri að fá van der Vaart á láni frá Real Madrid (síðar kom í ljós að um var að ræða sölu, ekki lánssamning). Það voru því æsispennandi lokamínútur á glugganum því óvíst var hvort tilskyldir pappírar hefðu farið í gegn í tæka tíð. Það kom svo í ljós að efasemdir voru uppi um að samningurinn hefði gengið í gegn og þurfti því að úrskurða um það á fundi forráðamanna Úrvalsdeildarinnar í dag. Grænt ljós fékkst svo á félagaskiptin eftir fundinn og hefur Tottenham því fest kaup á honum fyrir 8 milljónir punda. Van der Vaart hóf feril sinn hjá Ajax en þaðan hélt hann til Hamburg árið 2005. Eftir þrjú ár hjá Hamburg var hann seldur til Real Madrid en gengur nú til liðs við Tottenham.
Við bjóðum van der Vaart velkominn til Tottenham






