Varaliðið lék sinn fyrsta leik eftir jóla- og áramóta frí. Leikið var gegn Norwich og fóru leikar 0-5 fyrir okkar menn. Emil var að sjálfsögðu ekki með þar sem hann er nú í láni hjá Malmö og spurning hvort við eigum eftir að sjá hann í Tottenham treyju aftur.
En að leiknum. Við stilltum upp sterku liði með reynda og óreynda í bland. Ifil, Davenport og Jackson voru að koma inn í hópinn eftir lánstíma og meiðsli. Davenport skoraði fyrsta markið með skalla og Rasiak bætti öðru við með tilþrifum, Jackson átti báðar stoðsendingarnar. Rasiak lagði svo upp næstu tvö fyrir Barnard sem virðist skora þegar honum dettur það í hug (spurning að gefa honum sjans á aðalliðinu). Dawkins gerði svo síðasta markið eftir undirbúning frá McKenna.
Liðið: Cerny, Kelly (McKie, 46), Ifil, McKenna, Lee, Davenport, Routledge (Maghoma, 75) , Jackson, Barnard, Rasiak (Dawkins, 60), Barcham. Varamenn: Burch, Lewis.






