Varalið Tottenham mætti varaliði Watford í fyrsta leik varaliðsdeildarinnar í gær mánudag. Leikurinn fór fram á heimavelli varaliðsins Bradhall Way, Stevenage. Við unnum leikinn 4-1 með mörkum frá Kanoute, Lennon, Davenport og Barnard.
Emil var á bekknum en kom ekki inná. Það var ljóst að Jol notaði þennan leik til að koma nokkrum leikmönnum aðalliðsins í betra form fyrir fyrsta leik aðalliðsins á laugardag. Af þeim sem léku í þessum leik má búast við að Kanoute, Kelly og Lennon verði í hópnum á laugardag. Kanoute gerði fyrsta markið strax á 10. mínútu og Lennon bæti við marki á 54. mínútu. Í millitíðinni jafnaði Watford. Davenport kom svo Spurs´í 3-1 og Barnard kláraði málið á 88. mínútu. Langbestu menn Spurs voru Kanoute og Lennon. Ziegler olli vonbrigðum og á eitthvað eftir í land með að komast í toppform.
El Hamdaoui snéri á sér ökklann og varða að fara útaf og eins bað Huddlestone um skiptingu eftir að hafa fengið á sig högg.
Liðið: Fulop; Kelly, Bunjevcevic (fyrirl.), Davenport, Ziegler; Lennon, Huddlestone (McKie, 71), O’Hara, Jackson; Kanoute, El Hamdaoui (Barnard, 78)
Varamnen: – Burch; Ifil; Hallfredsson






