Paul Robinson var valinn leikmaður síðasta tímabils af íslenskum aðdáendum Spurs og er það ekki af ástæðulausu. Hann er búinn að standa sig frábærlega síðan hann kom til félagsins og hefur þróað frábær tengsl við aðdáendur Spurs. Í þessu langa viðtali, sem mun birtast hér á næstu dögum, talar Paul um allt frá lengdinni á markspyrnum sínum til þess hver hermir best eftir Martin Jol.
Gætirðu ímyndað þér að klára ferilinn hjá Spurs?
Já, í augnablikinu. Ég er með samning til margra ára og ég er mjög ánægður hér. Fjölskyldan mín er líka mjög ánægð hér þannig það er engin ástæða fyrir mig að áætla annað.
Af hverju ákvaðstu 7 ár(samnig), vegna þess að eins og þú segir, er þetta risasamningur?
Þetta er í raun 4 ára samningur með 3 ára “option”, þetta er ekki beint 7 ára samningur, en það ekkert sem ég myndi vilja meira en að vera öll 7 árin og vonandi verður annar samningur á borðinu eftir HM næsta sumar svo ég geti framlengt aftur.
Hvaða leikmann myndir þú vilja sjá hjá félaginu?
Alla sem vilja klæðast búningnum með ástríðu og stolti og vilja standa sig vel. Kannski……einhver eins og…..Ronaldinho.
Hafðirðu svipað samband við Leeds aðdáendurna eins og þú hefur við Spurs aðdáendurna?
Nei, nei. Leeds aðdáendurnir voru góðir við mig, ég ólst upp þar en Spurs aðdáendurnir eru ótrúlegir, ég hef aldrei upplifað annað eins. Samband okkar er sérstakt og vonandi mun það vera það í langan tíma.
Hvaða sæti í deildinni myndu leikmennirnir líta á sem góðan árangur í lok tímabilsins?
Ég held að farsælt tímabili verði að vera ofar en á síðasta tímabili. Við sýndum hvað í okkur býr snemma á tímabilinu og við erum í 3. sæti sem stendur, þegar 10 leikir eru búnir, þannig að það er engin ástæða fyrir því að við getum ekki haldið því sæti. Ég held samt að topp 5-6 væri góður árangur, eða Evrópusæti.
Hversu mikil áhrif hefur Edgar Davids haft á liðið síðan hann kom?
Hann er heimsklassaleikmaður, hann er búinn að sanna sig og að hafa sigurvegara eins og hann í liðinu mun bara hafa góð áhrif á okkur. Hann er búinn að standa sig vel og það sést á úrslitunum.
Hann(Davids) var drifkrafturinn á móti Man. Utd, var það ekki?
Já, hann spilaði vel í þeim leik, mér fannst hann vera okkar besti maður.
Öfunda hinir leikmennirnir allan þann stuðning sem aðdáendurnir veita þér; ræða þeir söngvana sem við syngjum og hvað finnst þeim um okkur, aðdáendurna, almennt?
Aðdáendurnir eru frábærir við okkur, það er mikil þolinmæði í gangi hjá félaginu. Þeir gera sér grein fyrir því að miklar breytingar hafa átt sér stað síðustu 2 ár – þú veist, breyting á þjálfara, breyting á leikmannahópnum, allir þeir leikmenn sem hafa komið og farið. Aðdáendurnir hafa séð það, en þeir gera sér grein fyrir því að það mun koma félaginu og liðinu til góða, og vonandi getum við endurgoldið þeim það. Fólk segir að það sé langt síðan félagið vann eitthvað og við erum allir meðvitaðir um það, og það er ekkert sem okkur langar meira til en að bæta við bikurum í verðlaunaskápinn – fyrir aðdáendurna.
Við Spursarar höfum upplifað mikil vonbrigði undanfarin ár, en margir hafa trú á því sem nú er í gangi.
(Paul) Já, þetta hefur verið mikið upp og niður hjá félaginu síðastliðin ár, hefur fólk sagt mér, og aðdáendurnir eru réttilega mjög bjartsýnir enda er þetta stórt félag. Kannski á þessu ári eða næsta, eða í nánustu framtíð er rétti tíminn – vonandi.
Eru leikmennirnir eitthvað að gantast í þér vegna vinsælda þinna?
Nei, ég held að engin geti gert grín að manni vegna þess, ég held að allir myndu vilja vera vinsælir. Þessi stuðningur er sérkennilegur því að þegar boltinn er hinu megin á vellinum halda aðdáendurnir áfram að syngja, sama hvað þeir eru að syngja. Þeir eru að styðja mjög vel við bakið á okkur á þessu tímabili og það gerir okkur kleift að koma út í seinni hálfleik og snúa leikjum við.






