2-2 í hálfleik gegn Arsenal

0
687

Leikurinn í gær í undanúrslitum deildarbikarsins var eins og að horfa á Jakyll og Hyde í bíó. Tottenham byrjaði mjög vel og gerði tvö mörk í fyrri hálfleik. Fyrra gerði Berbatov sem varð svo að fara af velli meiddur og hitt var sjálfsmark sem Baptista gerði eftir ágæta sókn Tottenham. Það stóð semsagt ekki steinn yfir steini hjá Arsenal lengst af fyrri hálfleiks. En þá var komið að því að Tottenham skipti um ham. Segja má að við það að láta Keane spila á miðjunni þegar hann kom inná fyrir Berbatov í stað þess að láta hann spila uppi með Defoe hafi kostað okkur mikið. En það var fleira. Þreyta tók að gera vart við sig í seinni hálfleik og það var augljóst að Hudd og Zokora lágu allt of aftarlega á miðjunni og gáfu Fabregas í raun allt það pláss sem hann þurfti það kostaði okkur annað markið þeirra þar sem hann fékk áreittur að senda boltan innfyrir vörnina í hægra hornið þar sem bakvörðurinn kom hlaupandi og gaf fyrir á Baptista. Það bætti svo ekki úr undarlegt úthlaup Robinson. Fyrra markið gerði Baptista líka svo segja má að hann hafi átt að eiga boltan úr leiknum fyrir að gera þrennu. Það grátlega við þetta er að þessi sami Baptista átti að vera farinn útaf með tvö gul spjöld en slapp með þessum afleiðingum. Eins var Keane réttstæður í seinni hálfleik þegar hann fékk sendingu inn fyrir vörnina og var einn á móti markmanni. En línuvörðurinn klúðraði því.
Það verður bara að segja það að þó við séum með ungt lið var þetta lið ARsenal mun yngra og tókst að ná jafntefli á WHL sem er ekki beint vinalegur strákum í Arsenaltreyjum. En ólíkt okkar leikmönnum stóðust þeir álagið á útivelli en það er eitthvað sem okkar mönnum hefur ekki tekist í vetur. Seinni leikurinn fer fram á miðvikudag á brotajárnshaugunum hjá Arsenal. Það þarf svona hugarfarsbreytingu hjá þessum leikmönnum okkar eins og handboltastrákarnir okkar sýndu í Frakkaleiknum eftir tapið við Úkraníumenn. Þá er von.
COYS
Liðið:   Robinson, Chimbonda, Assou-Ekotto, Dawson, Gardner, Huddlestone, Zokora, Malbranque, Lennon, Defoe (Mido, 80), Berbatov (Keane, 18).
Varamenn: Cerny, YP Lee, Ghaly.