Það reyndist auðvelt að klára leikinn gegn Southend að þessu sinn. Fyrirstaðan var ekki mikil og því olli lið Tottenham enn einu sinni vonbrigðum með of mikið af röngum ákvörðunum þannig að í stað öruggrar forustu í hálfleik var munurinn aðeins eitt mark. Í fyrri hálfleik áttum við 17 marktilraunir en þeir 2. Spilið út á velli fínt en þegar kom að marki anstæðinganna klúðruðust hlutirnir of oft.
En þrátt fyrir það var sigurinn öruggur og liðið verður í hattinum á mánudag í hádeginu þegar dregið verður í 16. liða úrslit.
Jol gerði miklar breytingar á liðinu frá miðvikudagsleiknum gegn Arse. Berbatov er meiddur og kom Mido í hans stað. Þá byrjaði hann með Keane og hvíldi Defoe. Jenas kom inn í liðið eftir meiðsli og Hudd fékk hvíld eins og Steed en Ghaly kom inn fyrir hann. Nýi varnarmaðurinn okkar Rocha lék sinn fyrsta leik og stóð sig vel. Með honum var Dawson. Lee og Stalteri, sem var að koma inn eftir meiðsli, voru bakverðir. Cerny var á milli stanganna og Alnwick var á bekknum þannig að Robinson var hvíldur.
Keane gerði fyrsta markið á 12. mínútu og Jenas bætti öðru við eftir fyrirgjöf frá Lennon. Víti var dæmt á okkur í seinni hálfleik í stöðunni 2-0 sem Southend skoraði úr. Mido gerði svo út um leikinn með þriðja marki okkar líka eftir sendingu frá Lennon, sem var í feikna stuði í leiknum.
Liðið: Cerny, Stalteri, YP Lee, Rocha, Dawson, Lennon, Zokora, Jenas, Ghaly (Malbranque, 73), Keane (Defoe, 78), Mido (Huddlestone, 85).
Varamenn: Alnwick, Gardner.






