Tottenham átti leik við Wigan í síðustu viku á heimavelli. Tottenham kom vel tilbaka eftir svekkelsis tap gegn Man City helgina á undan og sigruðu lið Wigan 3-1. Mörk Tottenham skoruðu Bale 2 og Modric. Með þessum sigri styrkti lið Tottenham stöðu sína í 3. sæti deildarinn enn frekar.
Tottenham voru miklu betra liðið í þessum leik og unnu sanngjarnan sigur. Bale kom Tottenham yfir á 26. mínútu þegar hann fékk sendingu frá Modric sem hann tók á kassann og skoraði af öryggi. 5 mínútum síðar kom Modric Tottenham í 2-0 með góðu skoti fyrir utan teig. Lið Tottenham fékk fleiri færi í fyrri hálfleik en staðan 2-0 í hálfleik.
Á 64. mínútu skoraði Bale sitt annað mark og þriðja mark Tottenham þegar hann fékk boltann við vítateigslínu vinstra megin, lék aðeins inn í teginn og átti hörkuskot með jörðinni í fjærhornið neðst niðri ( trademark goal hjá Bale ).
Eftir þetta gaf Tottenham aðeins eftir og þegar um 10 mínútu voru eftir af leiknum náði Wigan að minnka muninn í 3-1.
Öruggur sigur Tottenham og liðið aftur komið á sigurbraut.
Lið Tottenham í leiknum :
Friedel – Walker (Sandro 75 ) – King – Kaboul – Ekotto – Kranjcar – Parker – Modric – Bale – VdV (Livermore 31 ) – Adebayor (Lancaster 78 )
Ónotaðir varamenn :
Cudicini – Dawson – Rose – Pienaar
Tölfræði úr leiknum.
Skot á mark
Tottenham 13 Wigan 6
Skot framhjá
Tottenham 7 Wigan 4
Hornspyrnur
Tottenham 5 Wigan 0
Með boltann
Tottenham 53% Wigan 47%
.
.
.
BÓ






