Tottenham fór með hálf vængbrotið og þjálfaralaust lið á Anfield Road í Liverpool í gær. Van Der Vaart , Defoe , Kaboul , Sandro , Gallas , Lennon , Huddlestone voru til að mynda allir frá vegna meiðsla og svo komst Harry Redknapp ekki til Liverpool þar sem flugið hans frá London var fellt niður. Þannig að stigið sem Tottenham fékk í gær var kærkomið , en leikar enduðu 0-0. Var þetta aðeins annar leikurinn á tímabilinu í deildinni þar sem liðið nær ekki að skora , fyrir þennan leik hafði Tottenham skorað í 22. leikjum í deildinni í röð.
Liðið í gær var samt nokkuð sterkt , en það var áberandi að bekkurinn hjá Tottenham var ekki sá sterkasti í þessum leik. Nýju leikmennirnir Saha og Nelson fengu þó pláss á bekknum ásamt kjúklingum.
Fyrri hálfleikur í gær var ekki uppá marga fiska þó Liverpool hafi líklega verið aðeins betra liðið á vellinum án þess þó að skapa sér almennileg færi. Það skemmtilegasta í fyrri hálfleiknum í gær var örugglega þegar köttur kom inná völlinn og tafði leik í nokkra stund.
Síðari hálfleikur var mun betri en sá fyrri , liðin fengu ágætis færi en inn vildi boltinn ekki. Bale fékk líklega besta færi leiksins á 87. mínútu þegar hann komst einn í gegn , en Reina markvörður Liverpool sá við honum með góðu úthlaupi. Friedel stóð vaktina vel í marki Tottenham og var öryggið uppmálað í öllum sínum aðgerðum.
Lokatölur 0-0 og líklega nokkuð sanngjörn úrslit.
.
Lið Tottenham í leiknum
Friedel – Walker – King – Dawson – Ekotto – Krancjar (Rose 87 ) – Parker – Modric – Livermore – Bale – Adebayor (Saha 71 )
Ónotaðir varamenn:
Cudicini – Nelsen – Khumalo – Luongo – Lancaster
.
Tölfræði úr leiknum
Skot á mark
Liverpool 10 Tottenham 6
Skot framhjá
Liverpool 5 Tottenham 3
Hornspyrnur
Liverpool 7 Tottenham 4
Með boltann
Liverpool 52% Tottenham 48%
.
.
BÓ






