Öruggur sigur á Wigan

0
695

Tottenham átti leik við Wigan í síðustu viku á heimavelli.  Tottenham kom vel tilbaka eftir svekkelsis tap gegn Man City helgina á undan og sigruðu lið Wigan 3-1.  Mörk Tottenham skoruðu Bale 2 og Modric.  Með þessum sigri styrkti lið Tottenham stöðu sína í 3. sæti deildarinn enn frekar.

Tottenham voru miklu betra liðið í þessum leik og unnu sanngjarnan sigur.  Bale kom Tottenham yfir á 26. mínútu þegar hann fékk sendingu frá Modric sem hann tók á kassann og skoraði af öryggi.  5 mínútum síðar kom Modric Tottenham í 2-0 með góðu skoti fyrir utan teig.  Lið Tottenham fékk fleiri færi í fyrri hálfleik en staðan 2-0 í hálfleik.

bale_celebration.jpgÁ 64. mínútu skoraði Bale sitt annað mark og þriðja mark Tottenham þegar hann fékk boltann við vítateigslínu vinstra megin,  lék aðeins inn í teginn og átti hörkuskot með jörðinni í fjærhornið neðst niðri ( trademark goal hjá Bale ).

Eftir þetta gaf Tottenham aðeins eftir og þegar um 10 mínútu voru eftir af leiknum náði Wigan að minnka muninn í 3-1.

Öruggur sigur Tottenham og liðið aftur komið á sigurbraut.

Lið Tottenham í leiknum :

Friedel – Walker (Sandro 75 ) – King – Kaboul – Ekotto – Kranjcar – Parker – Modric – Bale – VdV (Livermore 31 ) – Adebayor (Lancaster 78 )

Ónotaðir varamenn :

Cudicini – Dawson – Rose – Pienaar

Tölfræði úr leiknum.

Skot á mark

Tottenham   13       Wigan   6

Skot framhjá

Tottenham   7        Wigan  4

Hornspyrnur

Tottenham 5       Wigan 0

Með boltann

Tottenham  53%    Wigan 47%

.

.

.