Flugeldasýning á WHL

0
823

Lið Newcastle kom í heimsókn á White Hart Lane á laugardaginn var og fóru þaðan aftur tómhentir.  Tottenham lék við hvern sinn fingur og gjörsigruðu lið Newcastle 5-0.  Mörk Tottenham skoruðu Saha 2 , Adebayor , Ekotto og Krancjar.  Þess má til gamans geta að Adebayor lagði upp 4. mörk í leiknum og skoraði sjálfur eitt,  stórleikur hjá honum.

Leikurinn á laugardaginn var ekki nema fjögurra mínútna gamall þegar Tottenham skoraði fyrsta markið.  Adebayor tók þá þríhyrningaspil fyrir utan teiginn , fékk boltann aftur og lék í átt að endamörkum, þar sem hann átti fína sendingu með jörðinni á fjærstöng þar sem Ekotto kom einn og óvaldaður og átti ekki í erfiðleikum með að skora í tómt markið.

Aðeins tveimur mínútum síðar var staðan orðin 2-0.  Adebayor fékk þá sendingu upp hægri kantinn , með mann í sér náði hann fínni fyrirgjöf sem rataði beint á Saha sem kom hlaupandi inn í teiginn sem tók boltann í fyrsta og setti yfir Krul í marki Newcastle , glæsilegt mark í alla staði.

tottenham_-_newcastle_saha_mark.pngNewcastlemenn vissu ekki hvort þeir væru að koma eða að fara , spilamennskan þeirra var alveg skelfilegt og Tottenam réði gangi leiksins gjörsamlega.  Ekki þurftu áhorfendur á White Hart Lane að bíða lengi eftir næsta marki , en það kom á 20. mínútu.  Modric átti þá gott hlaup í átt að vítateigshorninu vinstra megin og fékk frábæra sendingu frá Ekotto.  Lék aðeins inn í teiginn og sendi svo fyrir , beint á Adebayor sem lagði boltann út í teiginn á Saha sem tók boltann í fyrsta og skoraði framhjá Krul.

Markaregnið hélt áfram og þegar 34. mínútur voru komnar á klukkuna skoraði Tottenham fjórða markið.  Tottenham átti hraða sókn sem endaði með því að Adebayor komst í færi en Krul varði í markinu,  boltinn barst aftur til Adebayor sem kom boltanum að lokum til Krancjar sem skoraði ,hans fyrsta mark á tímabilinu.

Staðan í hálfleik var því 4-0 og aðeins eitt lið á vellinum.

Síðari hálfleikur var ekki jafnfjörugur og sá fyrri enda leikurinn svo til búinn.  Tottenham náði samt að bæta við einu marki í síðari hálfleik en það gerði Adebayor eftir góðan undirbúning Saha.  Með þessu marki kórónaði Adebayor leik sinn , en hann hafði lagt upp fyrstu fjögur mörk leiksins.  1 mark og 4 stoðsendingar hjá kappanum á laugardaginn og gaman að fá hann í gang aftur eftir smá lægð sem hann hefur verið í og fengi gagnrýni fyrir.

tottenham_-_newcastle_adebayor_fagn.png

.

Lið Tottenham í leiknum

Friedel – Walker – Dawson – King ( Nelson 75 ) – Ekotto – Krancjar – Modric – Parker – Bale ( Lennon 67 ) – Saha ( Defoe 67 ) – Adebayor

Ónotaðir varamenn

Cudicini – Khumalo – Rose – Livermore.

 .

Tölfræði úr leiknum.

Skot á mark

Tottenham   9     Newcastle  3

.

Skot framhjá

Tottenham 9    Newcastle  4

.

Hornspyrnur

Tottenham  4    Newcastle  3

.

Með boltann

Tottenham  63 %    Newcastle 37 %

.

.