Tveir leikmenn Spurs, þeir Mounir el Hamdaoui og Johnnie Jackson, hafa verið lánaðir til 1. deildarliðs Derby County næstu þrjá mánuðina. Þetta er í fimmta skipti sem Jackson fer til annars liðs í láni en hann hefur áður verið m.a. hjá Coventry og Watford, en Hamdaoui hefur ekki áður verið lánaður frá Spurs. Það kemur nokkuð á óvart að Hamdaoui skuli vera lánaður út núna því hann hefur verið að standa sig mjög vel með varaliðinu og var jafnvel talið að hann myndi fá tækifæri með aðalliðinu í næstu leikjum.
Jackson sagði að hann væri sáttur við að komast til Derby vegna þess hve erfitt það væri að komast í liðið hjá Tottenham nú þegar hópurinn væri orðinn mjög stór. „Vonandi get ég haft svipuð áhrif og ég hafði hjá Watford í fyrra, þar sem ég spilaði besta fótbolta sem ég hef spilað”.






