Mido vill vera áfram hjá Spurs

0
876

Egyptinn Mido sem kom til Spurs fyrr á þessu ári hefur sagt að hann hafi áhuga á að vera hjá félaginu næstu 6-7 árin. Mido, sem er nú í banni, er aðeins 22 ára en hefur þrátt fyrir það leikið fyrir fjöldamörg félög í 7 löndum á sínum stutta ferli. En nú er hann tilbúinn að koma sér fyrir á einum stað og telur hann Tottenham vera staðinn til þess. „Það hefur verið bæði gott og slæmt að skipta sífellt um félög, gott vegna þess að ég hef fengið að kynnast mikið af fólki og öðlast mikla reynslu.”

„En hins vegar slæmt vegna þess að ég hef aldrei náð að koma mér almennilega fyrir neins staðar, og það hefur leitt til þess að ég hef ekki geta staðið mig vel á vellinum. Það er nákvæmlega þess vegna sem ég vill vera hjá Spurs næstu 6-7 árin, til að koma mér almennilega fyrir,” sagði Mido.

Mido var í byrjunarliðinu í öllum leikjum Spurs þangað til hann fór í bann, og er greinilegt að Martin Jol lítur á hann sem mikilvægan hlekk í liðinu.

DEILA
Fyrri fréttMido gefst ekki upp
Næsta fréttTveir til Derby