Mido hefur beðið Enska knattspyrnusambandið að veita sér munnlegan málflutning eftir að hafa neitað að hafa hagað ókurteisislega eftir að hafa verið sýnt rauða spjaldið gegn Chelsea. Eins og flestir vita þá var Mido rekinn af velli í fyrri hálfleik fyrir brot á Del Horno, leikmanni Chelsea. Fyrir rauða spjaldið fékk hann þriggja leikja bann sem hann tekur nú út. En hannn hyggst hins vegar koma í veg fyrir frekara bann með því að biðja um þennan svokallaða "personal hearing."
Sú ákæra, þ.e. fyrir slæma hegðun eftir að hafa verið vísað að velli, er það sem Mido er að berjast gegn, en það verður að teljast ólíklegt að hann nái að sannfæra knattspyrnusambandið um að viðbrögð hans hafi verið réttlætanleg. Því er útlit fyrir að það bætist a.m.k. 1 leikur við þriggja leikja bannið, sem myndi þýða að næsti leikur hans yrði ekki fyrr en 1. október gegn Fulham.






