Jol: Við þurftum annað mark

0
694

Martin Jol segir að ef liðið hefði bætt öðru marki við í leiknum gegn Arsenal hefði sigurinn verið öruggur. Jol sagði að fyrri hálfleikurinn hefði verið nánast fullkominn en Spurs áttu leikinn í fyrri hálfleik og leiddu 1-0 í hálfleik. 

Það gerðu sér allir grein fyrir að það yrði erfitt að halda uppteknum hætti í seinni hálfleik og að Arsenal myndu bæta ráð sitt. Spurs áttu þó góð færi sem Lehmann varði en jöfnunarmark andstæðinganna tók allan vind úr leikmönnum Spurs.

Martin Jol hafði þetta að segja: „Við vorum mun betri í fyrri hálfleik, sköpuðum okkur færi en ég vissi að við þyrftum að skora annað mark til að klára leikinn. Við pressuðum þá vel og ég var mjög ánægður með miðjuna mína, Carrick, Jenas og Tainio.”

„Við fengum færin til þess en okkur tókst ekki að nýta þau, og það kostaði okkur því að þeir gátu alltaf skorað. Í seinni hálfleiknum sá maður öðruvísi Tottenham og öðruvísi Arsenal.”

En Jol neitaði að kenna Paul Robinson um markið sem Arsenal skoruðu, en úthlaup hans var kannski ekki alveg úthugsað.

„Ég veit ekki hvort ég geti kennt honum(Robinson) um markið. Hann ákvað að kýla boltann og hann fór því miður til Pires,” sagði Martin Jol.