Wayne Routledge er byrjaður að geta hlaupið á ný eftir meiðsli sem hann hefur þjáðst af síðastliðna mánuði. Eins og flestir vita meiddist hann í fyrsta leik tímabilsins gegn Portsmouth en hann hefur ekki sprakað í bolta síðan þá.
Hann hafði staðið sig frábærlega á undirbúningstímabilinu þannig að meiðslin komu eins og köld vatnsgusa framan í hann.
Eftir að hafa losað sig við spelkuna sem hann hefur notað, getur hann hafið æfingar að nýju.
„Í byrjaði að hlaupa í síðustu viku, skokka í 10 mínútur og skipta um stefnu. Þetta gengur bara vel og næsta skrefið er að byrja að vinna með bolta.”
„Þetta er búið að taka langan tíma en vonandi fer þetta að koma. Í augnablikinu gengur allt vel,” sagði Wayne Routledge.






