Kelly nefbrotinn

0
689

Stephen Kelly varð fyrir því óláni á æfingu í vikunni að nefbrotna, þegar hann lenti í samstuði við Jamie O’Hara, en hann er samt staðráðinn að vera með gegn Bolton á mánudaginn.

„Þetta er ekki það slæmt,” sagði Kelly. „En ég ætti að geta æft með liðinu á laugardaginn, en ég hef þurft að æfa einn síðustu daga.

„Ég var svolítið aumur á eftir og með smá höfuðverk, en verkjalyfin redduðu því. Þetta mun samt ekki hafa áhrif á mig líkamlega og ég býst við vera í hópnum fyrir leikinn.”