Fimm af leikmönnum Tottenham hafa verið valdir í landsliðshóp Englendinga fyrir landsleik þeirra gegn Argentínu næstkomandi laugardag í Sviss. Þeir Paul Robinson, Ledley King, Michael Carrick, Jermaine Jenas og Jermain Defoe voru allir valdir í hópinn.
Þetta þýðir að Tottenham eru með flesta fulltrúa í enska hópnum ásamt Chelsea en það verður að teljast mjög gott. Þetta sýnir líka að sú stefna félagsins að kaupa unga enska leikmenn er að skila sér.
Þá ber einnig að geta þess að U-21 lið Englands mun leika leik sinn í umspili um sæti á Evrópumóti U-21 landsliða næsta sumar á White Hart Lane á föstudaginn og eru þeir Michael Dawson, Tom Huddlestone og Aaron Lennon í þeim hópi.






