Bolton 1 – 0 Spurs

0
706

Á mánudagskvöld fóru Spurs í heimsókn til Bolton, en síðarnefnda liðið hefur fylgt eftir góðu gengi í fyrra og er sem stendur í þriðja sæti deildarinnar. Þeir hafa verið geysilega sterkir á heimavelli, og sendu Spurs tómhenta til London, lokatölur 1-0 fyrir heimamenn.

Edgar Davids sneri aftur í byrjunarliðið, eftir að hafa tekið út leikbann vegna fjölda gulra spjalda. Hann kom inn í liðið í stað Aaron Lennon sem á við smávægileg meiðsli að stríða. Að öðru leyti var byrjunarliðið óbreytt frá því liði sem gerði jafntefli gegn Arsenal í síðustu umferð.

Aðstæður voru erfiðar fyrir leikmenn beggja liða, völlurinn virtist þungur og talsvert rok hafði áhrif á sendingar. Bolton virtust þó ráða betur við þetta og voru sterkari aðilinn framan af. Þeir komust síðan yfir eftir um það bil hálftíma leik. Boltinn barst til Kevin Nolan eftir langa sendingu fram og lét hann vaða í fjærhornið, algjörlega óverjandi. 

Þrátt fyrir að Bolton hafi haft undirtökin framan af virtist sem leikmenn Spurs ætluðu að standa af sér ágang þeirra, og því var þetta mark hálfgert reiðarslag. En skömmu síðar hélt Jermain Defoe að hann hefði jafnað metin með góðu marki, eftir glæsilega stungusendingu frá Teemu Tainio. Línuvörðurinn hafði hins vegar dæmt hann rangstæðan, dómur sem reyndist vera rangur. Lee fékk gott færi skömmu síðar, sömuleiðis eftir sendingu frá Tainio, en hann hitti boltann illa og sóknin rann út í sandinn.

Fram að leikhléi virtust Spurs vera að ná undirtökunum, og það sem eftir lifði leiks voru þeir talsvert meira með boltann. Bolton vörðust hins vegar vel og nutu góðs af því hversu illa gestunum gekk að spila boltanum sín á milli.

Tainio fékk tvö hálffæri sem hann fór illa með, Mido gerði vel þegar hann fór fram hjá þrem varnarmönnum á leið inn í markteig. Carrick átti einnig ágætis tilburði og skot sem varnarmanni Bolton tókst að komast fyrir. Mido átti skot í stöng í færi sem virtist auðveldara að skora úr og í uppbótartíma átti Stalteri skot utan af kanti sem fór í þverslána. 

Þrátt fyrir að ekkert hafi gengið upp í þessum leik hefði jafntefli alls ekki verið ósanngjörn úrslit. Það er hins vegar dýrt að missa stig gegn Bolton, þar sem ekki er ólíklegt að þeir verði á svipuðu róli og Tottenham þegar deildinni lýkur í vor. Liðið barðist ágætlega, þrátt fyrir mótlætið, og var frammistaðan allt önnur en maður hefur átt að venjast undanfarin ár, þar sem leikmenn hefðu hreinlega gefist upp.

 

Lið Spurs: Robinson 6, Stalteri 7, Lee 5 (Keane, 61), Dawson 8, King 7, Tainio 7, Jenas 6 (Brown, 83), Carrick 8, Davids 7, Mido 6, Defoe 6. Ónotaðir varamenn: Cerny, Kelly, Reid.