Jol svekktur eftir leikinn

0
635

Martin Jol telur að Tottenham hafi gert nóg í leiknum gegn Bolton til að verðskulda jafntefli. Honum þótti sérlega súrt að línuvörðurinn skuli hafa haft af löglegt mark af Jermain Defoe, auk þess sem leikmenn hans hittu tvisvar í tréverkið hjá Bolton.

Stjórinn hélt þó ró sinni sem endranær og sagði: "Þú verður að hafa svolitla heppni með þér. Ég geri mér grein fyrir því að þetta er erfitt starf, dómarastarfið, en þetta bitnaði illa á okkur."

Hann hélt áfram: "Þeir geta beðist afsökunar eftir leikinn, og raunar gerðu þeir það, en við hefðum átt að fá eitthvað út úr leiknum."

En þrátt fyrir vonbrigðin var Jol á heildina ánægður með frammistöðu liðsins. Um Bolton hafði hann þetta að segja: "Maður þekkir leikstíl þeirra og veit að þeir skapa sér alltaf færi, en að þessu sinni gerðu þeir það ekki og við gerðum allt rétt".

"Við áttum skot í stöng og slá, Teemu Tainio fékk tvö hálf-færi, við vorum meira með boltann og yfirspiluðum þá á löngum köflum, en við gátum ekki skorað. Ég held að við höfum verðskuldað jafntefli."