Viðræður við King nýhafnar

0
607

Fyrirliði Tottenham, Ledley King, hefur sest að samningaborðinu með Daniel Levy og félögum í stjórninni,  í von um að skrifa undir nýjan og betri samning. Núverandi samningur Ledley, sem verður 25 ára nú í desember, rennur út eftir tvö og hálft ár. 

Frammistaða fyrirliðans undanfarið hefur ekki farið fram hjá neinum, og er því félaginu mikið í mun að tryggja sér þjónustu hans næstu árin. Sjálfur hefur hann sagt að honum líði vel hjá félaginu og hann vilji vera þar áfram. Hann hefur verið fastamaður í landsliðshópi Englendinga, og nýverið tekið við hlutverki sem varnarsinnaður miðjumaður. 

Þær fréttir hafa heyrst í bresku pressunni í dag (sunnudag) að hann hafi hafnað fimm ára samningstilboði frá Tottenham. Yfirmaður íþróttamála, Damien Commoli, segir á heimasíðu félagsins að slíkar sögusagnir séu úr lausu lofti gripnar. "Við höfum hafið viðræður við Ledley og ráðgjafa hans. Þessar viðræður eru á byrjunarstigi, og þeim verður haldið áfram í einrúmi. Það er mikil ónákvæmni að segja að hann hafi hafnað tilboði okkar – við höfum ekki einu sinni lagt slíkt fram. Ledley á ennþá eftir tvö og hálft ár af samningi sínum".