Man City 0-2 Spurs

0
569

Tottenham lögðu frekar líflaust lið Manchester City af velli í kvöld 2-0 með mörkum frá Mido og Robbie Keane sitthvoru megin við hálfleik. Nokkrar breytingar voru gerðar á byrjunarliðinu vegna meiðsla, Tainio og Davids fóru út og inn komu Michael Brown og Aaron Lennon.

Liðin ógnuðu markinu ekkert sérstaklega til að byrja með og var leikurinn mest spilaður á miðjum vellinum fyrsta hálftímann og voru Spurs þar við stjórn.

Aaron Lennon reyndist vera hættulegasti leikmaður Spurs í sóknarleiknum og átti hann stóran þátt í fyrra markinu sem kom eftir rúmlega 30 mínútna leik. Lennon elti Sylvain Distin upp að endalínu og tókst að ná boltanum, gefa fyrir á Mido sem setti boltann af varnarmanni City og í markið.

Forysta Spurs var svo sannarlega verðskulduð og var vörnin einnig frekar sterk en Paul Robinson hafði ekkert að gera allan leikinn.

Síðari hálfleikurinn hófst líkt og sá fyrri endaði og bjóst maður við að Spurs myndu gera út um leikinn strax. En sóknarleikurinn skilaði frekar litlu fyrir utan eitt hlaup frá Michael Brown sem stóð sig prýðilega.

Sigurmarkið kom síðan skömmu fyrir leikslok og má segja að það hafi verið mjög einfalt; markspyrna frá Robinson, skallað áfram af Mido beint á Robbie Keane sem kláraði færið glæsilega. Eftir markið var sigurinn aldrei í hættu og gátu Spurs því slakað á það sem eftir var.

Glæsilegur sigur á útivelli en þó svartur blettur fyrir Spurs þar sem Mido og Lee urðu báðir fyrir meiðslum í leiknum og Lee eftir frekar ljóta tæklingu David Sommeil. Hann var borinn útaf  og taldi Martin Jol að hann yrði frá í rúmar 2 vikur.

Ekki er enn neitt vitað með Mido en þetta var hans síðasti leikur áður en hann fer til Egyptalands að spila í Afríkukeppninni, en hann mun fljúga til baka í leikinn gegn Liverpool.

Lið Spurs: Robinson 6, Stalteri 7, Gardner 7, Dawson 7, Lee 7(Pamarot 74), Lennon 8 (Defoe 84), Carrick 7, Jenas 6, Brown 7, Keane 7, Mido 8 (Rasiak 89). Ónotaðir varamenn: Cerny og Pedro Mendes.