Ledley King segist eiga möguleika á því að vera með í leiknum um helgina gegn Liverpool á Anfield. King hefur ekki leikið síðan á annan í jólum þegar hann meiddist í sigurleiknum gegn Birmingham. En hann hefur hafið æfingar að nýju og verður líklega í hópnum um helgina.
King meiddist í nára og missti af 4 leikjum þrátt fyrir að hafa verið frá í aðeins 2 vikur.
„Venjulega þegar maður meiðist í 2 vikur missir maður af 2 leikjum en á þessum árstíma eru það 4 leikir,” sagði King.
„Vonandi verð ég í hópnum fyrir leikinn, en ég er nýbyrjaður að hlaupa síðustu daga. Samt líður mér bara vel og ég held að ég hafi ekki tapað miklu formi á meðan ég var meiddur. Ef ég get aukið æfingarnar út vikuna verð ég vonandi með í leiknum.”
„Ég missti af fyrstu 4 leikjum þessa tímabils og kom svo aftur inn þegar við spiluðum við Liverpool á White Hart Lane, og það lítur út fyrir að það verði svipað núna,” sagði Ledley King.






