Tap í jöfnum leik

0
670

Því miður töpuðum við leik okkar á laugardag gegn Liverpool. Leikurinn var kannski ekkert fyrir augað en þó er hægt að segja að þarna hafi tvö álíka lið att kapp saman. Benitez ásamt fleiri púlurum létu hafa það eftir sér að Tottenham væri sterkasta lið sem hefði spilað á Anfield í vetur (kannski utan við Chelsea).
Þær breytingar voru á liðinu að Davids, King, Tainio og Lee komu aftur eftir meiðsli og Mido kom inn í liðið fyrir Rasiak. Eins og fyrr segir var jafnræði með liðunum í leiknum en vonir okkar voru að mestu slökktar þegar Stalteri var rekinn út af fyrir brot þegar Liverpool var að sleppa í gegn. Keane fékk gullið tækifæri til að jafna á loka sekúndum leiksins en hitt ekki boltan nógu vel og því fórum við tómhentir heim.
Við höfum góða möguleika í næstu leikjum að festa okkur í sessi í fjórða sætinu en þá verða menn að nýta sér spilamennsku eins og hún var í þessum leik og klára færin sín. Þá er það ekki bannað að skora fleiri en eitt mark á mann í leik.

Liðið: Robinson, Stalteri, Lee, Dawson, King, Jenas, Carrick, Davids (Lennon, 78), Tainio (Defoe, 66), Keane, Mido. Varamenn: Cerny, Brown, Gardner.