Dregið var í UEFA bikarkeppninni í morgun og er óhætt að segja að Tottenham hafi dregist í hálfgerðan dauðariðil en sá möguleiki var alltaf fyrir hendi þar sem félagið var í neðsta styrkleikaflokki. Nú bíður leikmannanna verðugt verkefni sem þeir vonandi ná að leysa með sóma.
Í riðli með Spurs eru Bayer Leverkusen, Besiktas, Club Brugge og Dinamo Bucharest. Allt verða þetta erfiðir leikir en aðeins er leikið einu sinni við hvert lið. Riðlakeppnin hefst 19 október og lýkur 14. desember og munu 3 efstu liðin í hverjum riðli þá fara áfram í 32 liða úrslit ásamt liðum sem detta út úr Meistaradeildinni.
| Riðill A Auxerre Rangers P Belgrade Livorno Maccabi Haifa |
Riðill B Bayer Leverkusen Club Brugge Besiktas Dinamo Bucharest TOTTENHAM |
| Riðill C Sevilla AZ Alkmaar Slovan Liberec Grasshopper Braga |
Riðill D Parma Lens Heerenveen Osasuna Odense |
| Riðill E Feyenoord Basle Wisla Krakow Blackburn Nancy |
Riðill F Ajax Sparta Prague Espanyol Austria Wien Zulte Waregem |
| Riðill G Panathinaikos Paris St Germain Rapid Bucharest Hapoel Tel Aviv Mlada Boleslav |
Riðill H Newcastle Celta Vigo Palermo Fenerbahce Eintracht Frankfurt |






