Ferð á Tottenham – Wigan

0
599

Önnur ferð Express ferða og Tottenhamklúbbins á þessu tímabili verður farinn á leik Spurs og Wigan á White Hart Lane þann 26. nóvember. Ferðin er þriggja nátta frá föstudeginum 24. nóv. til mánudags 27. nóv. Gist verður á Jury’s Clifton Ford hótelinu sem er fjögurra stjörnu hótel sem margir Íslendingar þekkja og er staðsett í göngufæri frá Oxford street og því upplagt að gera jólainnkaupin í leiðinni. Verðið er 58.900,- á mann miðað við tvo í herbergi.

Allar nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Express ferða á þessari slóð:

http://www.expressferdir.is/viewtrip.php?idt=69&idcat=2

Vonandi munu Spursarar fjölmenna í ferðina og um er að gera að bóka snemma.