Nú er um að gera að drífa í að panta sæti í ferð klúbbsins á leikinn við Wigan. Við verðum að hafa nokkurn fyrirvara á pöntun á miðum svo ég bið alla sem eru að spá í að fara að drífa í að panta svo það verði ekki of seint. Utan við að sjá leikinn þá er mjög gaman að vera í London á þessum árstíma rétt fyrir jól og fínt að gera jólainnkaupin í leiðinni.






