Það má segja að mikil dramatík hafi verið í þessum leik sérstaklega fyrir Villa menn. Angel átti sérstaklega skrautlegar 90 sekúndur þar sem hann brenndi af víti og skoraði svo sjálfsmark strax á eftir þegar engin hætta var á ferðum.
En að leiknum í heild.
Davenport kom inn í byrjunarliðið þar sem King var meiddur. Að öðru leyti var liðið það sama og byrjaði leikinn á móti Portsmouth. Villa menn byrjuðu betur en eftir ca. 15. mínútna leik náðum við yfirhöndinni og áttum nokkur ágæt skot á markið en tókst ekki að skora frekar enn svo oft áður þegar við höfum verið að skapa færi.
Í seinni hálfleik fóru ýmislegt að vinna gegn okkur. Dawson þurfti að fara af velli meiddur og kom Stalteri í hans stað en fór í hægri bakvörðinn og Chimbonda var færður í miðvörðinn. Svo gerist það að við fáum á okkur víti sem hefur sýnt sig að vera ekki víti og Davenport fékk rautt sem hefur nú verið aflétt. Angel tók spyrnuna og brenndi af eins og áður sagði. Við förum í sókn og fóum hornspyrnu. Aðeins þrír leikmenn Spurs voru utarlega í teignum og Defoe sendir boltan af einhverjum ástæðum fyrir markið mjög innarlega þar voru eintómir Villa menn og í þann mund sem markmaðurinn ætlaði að grípa boltan stekkur Angel fram fyrir hann og sneiðir í markið. Mjög undarlegt allt saman. Við semsagt komnir yfir einum færri og meira en 15. mínútur eftir. Davids kom inn fyrir Berbatov greinilega til að reyna að hanga á þessu marki.
Línuvörðurinn annar kom í veg fyrir að við næðum að auka muninn þegar hann veifaði Defoe rangstæðan þó hann hafi verið rétt innan við miðlínu Spurs meginn þegar botanum var spyrnt. En því miður tókst okkur ekki að verja þetta mark því Lennon og Jenas létu Barry leika of auðveldlega á sig og koma skoti á markið sem Robinson átti ekki möguleika gegn. Það sem eftir lifði leiks vorum við fastir í eigin vítateig en héldum stiginu.
Margir hafa sagt að við höfum verið að fá verðskuldað stig í þessum leik en ég segi að við erum enn þá að ströggla og það er kominn tími til að þetta lið fari að spila sem ein heild og sýna getu sem við vitum að býr í þessum einstaklingum.
Liðið:
Robinson: Chimbonda, Dawson (Stalteri, 51), Davenport, Ekotto; Ghaly (Lennon, 59), Jenas, Zokora, Murphy; Berbatov (Davids, 76), Defoe.
Varamenn: Cerny, Keane.






