Besiktas 0-2 Spurs

0
672

Ekki bjuggust margir við góðum úrslitum í Istanbul í kvöld en leikmenn Tottenham sýndu hvað í þeim býr með því að leggja Besiktas af velli 2-0 með mörkum frá Hossam Ghaly og Dimitar Berbatov.

Spurs voru betra liðið í leiknum alveg frá fyrstu mínútu og gáfu heimamönnum aldrei tækifæri til að opna vörnina. Ledley King kom aftur inn í byrjunarliðið og áttu hann og hinir varnarmennirnir þægilegan leik.

Tom Huddlestone kom einnig inn í liðið í stað Didier Zokora sem veiktist rétt fyrir leik. Huddlestone átti hins vegar fínan leik og hefur hann nú leikið í báðum útileikjum Spurs í Evrópu og staðið sig mjög vel í þeim báðum.

Hossam Ghaly kom Spurs yfir um miðjan fyrri hálfleikinn eftir sendingu frá Berbatov, sem var besti maður Spurs í leiknum. Nokkur heppnisstimpill var yfir markinu en engu að síður vel gert hjá Ghaly.

Staðan var 1-0 í hálfleik en síðari hálfleikurinn hófst þó með auknum sóknarþunga heimamanna en þess þó að þeir ógnuðu Paul Robinson í marki Spurs. Annað markið kom síðan rétt eftir klukkustundarleik.

Dimitar Berbatov fékk sendingu í gegnum vörn Besiktas og plataði einn varnarmann og síðan markvörðinn áður en hann renndi boltanum örugglega í markið. Markið var fyrsta mark Berbatov fyrir Spurs í Evrópu og hans annað fyrir félagið.

Spurs fengu nokkur færi til að bæta við það sem eftir var af leiknum en vörn Besiktas var í lakari kantinum og þá sérstaklega undir lokinn þegar þreyta sótti að þeim.

Sigur Spurs var svo sannarlega verðskuldaður og eykur það án efa sjálfstraust liðsins fyrir komandi leiki. Aaron Lennon kom inn á rétt fyrir leikslok ásamt Jermain Defoe og má búast við því að þeir verði báðir í byrjunarliðinu um helgina gegn West Ham.

Lið Spurs: Robinson 7, Chimbonda 7, Dawson 7, King 7, Assou-Ekotto 6, Ghaly 8 (Lennon, 82), Huddlestone 6, Jenas 5, Murphy 6 (Ziegler, 79), Berbatov 9 (Defoe, 89), Keane 5. Varamenn: Cerny, Davids, Stalteri og Gardner.