Tottenham-West Ham 1-0

0
590

Það er ljóst að Tottenham er smám saman að rétta úr kútnum. Liðið er farið að spila betur og þá koma úrslitin með. Nokkrar breytingar voru gerðar á liðinu frá leiknum á fimmtudag gegn Besiktas.

Lennon var í byrjunarliðinu í stað Ghaly og sýndi að hann er að komast í fyrra form. Davids var í byrjunarliðinu í fyrsta skipti í nokkurn tíma og kom fyrir Murphy sem var á bekknum ásamt Ghaly. Þá var framlínan núna Defoe og Mido sem var að ná sér af meiðslum. Keane var á bekknum en Berbatov var ekki í hópnum þrátt fyrir frábæran leik á fimmtudag. Virðist sem hann hafi verið hvíldur. Við vorum miklu betri mestallan leikinn og eins og oft áður áttum við þó nokkur góð færi sem ekki nýttust. Markið sem skildi liðin að í lokin gerði Mido í lok fyrrihálfleiks eftir fyrirgjöf frá Davids. Bestu menn okkar voru Huddlestone og Lennon ásamt King í vörninni. Þá var Cimbonda að spila mjög vel. Við höfum nú leikið 5 leiki án þess að tapa í öllum keppnum og gert í þeim 7 mörk. Það er því ljóst að við erum komnir á beinu brautina og gaman verður að fylgjast með liðinu í næstu leikjum.   
Liðið: Robinson, Chimbonda, Dawson, King, Assou-Ekotto, Lennon (Ghaly, 76), Huddlestone, Jenas, Davids, Mido, Defoe (Keane, 76). Varamenn: Cerny, Murphy, Gardner.