Mido mun vera frá keppni næstu tvær vikurnar vegna meiðsla í nára. Það er því öruggt að hann missir af leikjunum gegn Arsenal og Dinamo Bucharest.
Þetta eru mikil vonbrigði fyrir Mido en hann hefur ekki fengið mörg tækifæri til að sanna sig í deildinni, en spilamennska Dimitar Berbatov þýðir að Mido á alls ekki greiða leið inn í liðið.
Eftir leikinn í gær voru framherjamál Spurs enn og aftur í rædd og sagði Martin Jol enn eina ferðina að engin ætti öruggt sæti í liðinu, sem er að sjálfsögðu rétt. En maður verður þó að efast um það hvort það þjóni hagsmunum liðsins að taka heitan sóknarmann út úr liðinu.
Þrátt fyrir ummæli Jol verður samt að teljast líklegt að Berbatov og Defoe byrji leikinn gegn Arsenal.






