Tottenham-Charlton 5-1

0
630

Loksins, loksins, loksins stórsigur. Jol gerði aðeins eina breytingu á liðinu þar sem hann setti Tainio á miðjuna fyrir Zokora sem hóf þriggja leikja bann sitt. Fyrstu 20 mínúturnar var Charlton ýfið sterkara án þess að skapa sér mörg færi. 

En smám saman tóku okkar menn völdin á vellinum og á tveim mínútum þegar um hálftími var liðin af leiknum gerðu Berbatov og Tainio sitt markið hvor. ÞAð hefur staðið svolítið í liðinu að skora þetta annað mark til að afgreiða svona lið eins og Charlton er núna. En rétt fyrir hlé var heppnin með þeim þegar Andy okkar fyrrverandi Reid náði að plata Cimbonda og skjóta að marki. Dawson náði að setja löppina fyrir en það varð aðeins til að boltinn skrúfaðist yfir Robinson í markinu og sjálfsmark var staðreynd.
Þegar 10. mínútur voru liðnar af seinni hálfleik gerði Steed Malbranque sitt fyrsta mark fyrir Spurs eftir að Berbatov skallaði fyrirgjöf niður í teiginn til hans. Defoe gerði tvær tilraunir með langskot sem ekki tókust en átti svo frábært skot sem steinlá inni á 63. mínútu og staðan orðin 4-1. Eitthvað sem við sjáum ekki  á hverjum degi. En ballið var ekki búið því þrem míútum seinna Kastaði Robinson á Berbatov sem var úti á vinstri kanti nálægt miðju. Hann rók á rás upp kantinn og inn að marki þar sem hann náði að fara fram hjá tveim varnarmönnum og setja botlann fram hjá markmanninum. Fátt gerðist eftir það nema að Mido kom inn fyrir Berbatov og Murphy fyrir Steed. Robinson átti svo fína takta þegar Charlton gerði tvær lokatilraunir á mark okkar.
Við fórum upp í áttunda sæti við þenna sigur og erum komnir aftur á fullt í baráttuna um Evrópusæti en framundan er útileikir við Man. City og Newcastle svo við sjáum til með hvort strákarnir fari að hala inn stig á útivöllum en það hefur vægast sagt gengið illa til þessa.

Liðið:  Robinson, Chimbonda (Stalteri, 81), YP Lee, Dawson, King, Lennon, Huddlestone, Tainio, Malbranque (Murphy, 69), Defoe, Berbatov (Mido, 75). Varamenn: Cerny, Ghaly.

HJ