Myndir úr Wigan ferð klúbbsins

0
665

Nú eru komnar myndir á síðuna af ferð klúbbsins á Wigan leikinn í lok nóvember. Sjá tengil hér hægra megin á Korktöflunni. Eins og þið vitið þá vannst sá leikur
3-1. Til viðbótar við það hitti hópurinn á laugardagskvöldinu hópa úr sænska og danska stuðningsklúbbinum og var það fagnaðarfundir. Einnig bar óvæntan gest að garði.

Menn stungu saman nefjum og sungu og skemmtu sér. Gestur kvöldsins var sjálfur Martin Chivers einn frægasti framherji okkar hér á árum áður. Utan við að fá sér bjór með okkur svaraði hann spurningum og ræddi við okkur um stöðu Tottenham í nútíð og framtíð. Einnig rifjaði hann upp þegar hann kom til Íslands og lék með Tottenham gegn Keflvíkingum í fyrsta UEFA bikar leik Tottenham. Það er óhætt að segja að menn og konur voru ánægð með þennan óvænta gest sem gerði þessa ferð ennþá betri.

HJ