Hoddle í „hall of fame“

0
897

Nú í kvöld var Glenn Hoddle bætt í svokallað " hall of fame" safn okkar Spursara.

Á hátíðarsamkomu hjá Tottenham í kvöld var Glenn Hoddle bætt í frægðarhöll okkar Spursara.  Fékk verðlaun fyrir að vera "legend" hjá klúbbnum.   Vel að því kominn.  Var viðloðinn Spurs á einn eða annan hátt í hjartnær 27 ár.  Fékk hann fyrsta tækifæri sitt með Tottenham í ágúst 1975 sem 17 ára táningur.   Féll með Spurs í 2. deild á Englandi 1977 en var svo aðalmaðurinn að koma Spurs aftur á rétta braut.  Vann FA CUP með Spurs ´81 og ´82.  Á ferli sínum hjá Tottenham skoraði Hoddle 110 mörk !!  ekki slæmt af miðjumanni.  

Var svo Manager hjá klúbbnum frá Mars ´01 til September ´03 með ekki svo góðum árangri.  Að mínu áliti var Glenn Hoddle einhver besti og skemmtilegasti leikmaður sem spilað hefur í Spurstreyju.  Miðjumann eins og hann er varla að finna í boltanum í dag ..   Ef til væri annar Hoddle, myndi hann koma sér vel fyrir liðið í dag Smiley

Skemmtilegt quote sem ég fann um Glenn Hoddle. Bob Wilson sagði eitt sinn

" I hear Glenn Hoddle has found GOD !!!    That must have been one hell of a pass.. "

Lýsir kallinum mjög vel.

Hér eru nokkuð skemmtilegt video af hetjunni, tekið af youtube.com

http://www.youtube.com/watch?v=4a2pX6_rCfY

Bio