Til þeirra sem hafa fengið ítrekun v/félagsgjalda

0
623

Mér var að berast til eyrna að ítrekun sem ég óskaði eftir að sent væri til þeirra í klúbbnum sem ekki voru búnir að greiða greiðsluseðilinn vegna árgjaldsins innihéldi hótanir um frekari innheimtuaðgerðir.

Þetta eru mistök bankans að setja þetta fram með þessum hætti. Það er öllum frjálds að vera eða fara og við sentum þetta sem vinsamleg áminning en ekki hótun. Ég bið ykkur sem hafa fengið þetta ítrekunarbréf afsökunar á orðalaginu og mun ræða það við viðkomandi aðila hjá bankanum svo þetta komi ekki fyrir aftur. Ég vona þó að þið viljið vera í klúbbnum og greiðið árgjaldið sem fyrst.
Haraldur Jónasson
formaður