Tíðindi af leikmönnum

0
637

Ekki er allt jákvætt við sigur okkar á Middlesboro síðasta þriðjudag. Tveir mikilvægir leikmenn Tottenham munu missa af næstu leikjum, annar vegna meiðsla og hinn vegna leikbanns.


Samkvæmt frétt á official heimasíðu Tottenham þá hefur Martin Jol ákveðið að áfrýja ekki rauðu spjaldi Didier Zokora. Jol lét hafa eftir sér að honum þykir spjaldið vera fullkomlega réttmætt þar sem Zokora hljóp töluverða vegalengd til að taka þátt í æsingnum. Búast má við að Zokora taki út 3 leiki í bann og hann missir þá af leikjum gegn Charlton (heima), Man City (úti) og Newcastle (úti). Þetta ætti líka að þýða að miðjuparið í næstu leikjum sé Huddlestone og Jenas, ekki slæmt par það.

Í sömu frétt og hér að ofan ræðir Jol stuttlega um meiðsli Robbie Keane en eins og flestir tóku væntanlega eftir þá meiddist Keane stuttu eftir að hafa skorað sigurmarkið gegn M’Boro. Meiðslin eru ekki talin alvarleg en hann tognaði á liðbandi í hné. Ekki er vitað hve lengi hann verður frá en ljóst er að nú fær Defoe svo sannarlega tækifæri í byrjunarliðinu þar sem Mido er einnig meiddur. Defoe og Berbatov eru því einu leikfæru sóknarmennirnir í aðalliðinu. Götublaðið The Sun segir í frétt sinni að Keane verði a.m.k. frá út Desember, vonandi nær Defoe að sýna sitt rétta andlit á þessum tíma.

Hægt er að lesa nánar um nýjustu fréttir af leikmönnum Spurs á spjallsvæði okkar sem er að finna hér eða með því að smella á Spjallið hér að ofan. Við hvetjum alla Spursara nær og fjær til að skrá sig og láta skoðun sína í ljós.