Tottenham-Middlesbrough 2-1

0
590

Það var greinilegt að skammarræða Jol hafði áhrif á leikmenn Tottenham. Þeir voru miklu betri þó ekki sé hægt að segja að þeir hafi spilað mjög vel. Jol setti Keane og Tainio á bekkinn og inn komu Defoe og Hudd. þá kom Lee í vinstri bakvörðinn fyrir Ekotto sem var ekki einu sinni á bekknum. Snemma í leikmnum áttu Defoe og Hudd fín skot en ekki fór tuðran inn. Ekki var seinni hálfleikur nema rétt byrjaður þegar Hudd tók aukaspyrnu nálægt miðjunni sem Chimbonda skallaði inn í teig á Berbatov sem náði að taka hann viðstöðulaust á lofti aftur fyrir sig í fjærhornið. Frábært mark.
Tottenham réð svo gangi leiksins en gat ekki sett annað markið sem reyndist afdrifaríkt því Middlesbrough fafnaði á 80. mínútu úr horni sem ekki tókst að hreinsa. Strax eftikr markið setti Jol Keane inn fyrir Steed og hann var varla kominn inná þegar hann gerði frábært mark á 84. mínútu sem reyndist sigurmarkið. Leikurinn leistist svo upp í lokin þar sem Boateng og Zokora var vísað af velli fyrir slagsmál. Mér sýnist einsýnt að Zokora fái banninu aflétt þar sem hans hlutur í málinu var að hindra Boateng í að ráðast á Lennon sem hefði kannski átt að fá gult fyrir brot sitt á Boateng. Tainio kom svo inná fyrir Defoe á 85. mínútu og Keane varð að fara meiddur útaf á 90. mínútu og kom Murphy fyrir hann. Vonandi að meiðsli hans séu ekki alvarleg. Niðurstaðan varð sem sagt 2-1 og við aftur komnir í þriggja stiga fjarlægð frá 3. sæti sem Arse**nl er í núna en með leik til góða.
Liðið: Robinson, Chimbonda, YP Lee, Dawson, King, Lennon, Zokora, Huddlestone, Malbranque (Keane, 81; Murphy, 90), Berbatov, Defoe (Tainio, 85). Varamenn: Cerny, Stalteri.