Hvað er þetta með dómaranna

0
762

Bolton – Tottenham 3-1
Það er gjarnan sagt að atvik eins og það sem við lentum í á OT þegar markið var ekki dæmt jafnist út yfir lengri tíma og því sé óþarfi að gera mikið veður út af því. Það er ljóst að okkar réttlæti var ekki komið í gærkvöldi þegar við mættum Bolton. Því miður gerðist það enn einu sinni að dómarinn dæmdi sittáhvað eftir því um hvort liðið var að ræða. Víti á okkur vegna atviks sem var bolti í hönd og við höfum séð dómara margoft láta afskiptalaust, en ekki hjá okkur. Hann hinsvegar sá ekkert athugavert við það að Bolton leikmaður setti hendi fyrir boltann í aukaspyrnu fimm mínútum síðar. Hann hefur væntanlega metið það svo að um bolta í hönd væri að ræða.
Það er bara eins með fótbolta og lífið sjált að það er ekkert sem heitir réttlæti eða sanngirni í því og þeir fara gjarnan lengst sem hamast mest og valta yfir allt og alla og eru þá sjaldnast að spá í hvað er rétt og hvað er rangt.
En að leiknum. Jol stillti upp sama liði og gegn WBA að öðru leiti en því að Keane byrjaði og Defoe var á bekknum. Mér fannst við ekki vera að spila vel í fyrri hálfleiknum þó það hafi svo sem ekki verið neitt óréttlæti í 0-0 stöðu í hálfleik. Dómarinn tók svo öll völd á vellinum í seinni hálfleik með því að dæma víti á okkur og síðan neita okkur um augljósara víti rétt á eftir. Defoe kom inn á fyrir Edman á 63. mínútu og jafnaði skömmu seinna. En þá rak dómarinn Kanoute útaf, en fram að því vorum við að spila mun betur en í fyrri hálfleik. Við lékum ágætlega 10, en það er hinsvegar mikil áhætta sem við tökum að reyna að vinna og það kom í bakið á okkur í lok leiksins þegar Bolton tókst að gera tvö mörk á jafn mörgum mínútum. Það hefur sannast enn einu sinni að stjórarnir mega ekki vera valdir stjórar mánaðarins því þeir þrír sem síðast hafa fengið slíka viðurkenningu Pleat, Hopddle og Jol hafa allir lent í slæmum leikja kafla eftir það, Jol nú síðast. Við skulum bara vona að liðið rífi sig upp á laugardaginn gegn Portsmouth með nýju mennina innanborðs.
Liðið: Robinson, Kelly, Edman (Defoe, 65), King, Gardner; Davies, Brown, Carrick, Atouba; Kanoute, Keane. Varamenn: Cerny, Bunjevcevic, Mido, Marney. HJ