Langþráður sigur hjá Spurs

0
689

Spurs 3-1 Portsmouth
Eftir að hafa gengið illa í deildinni síðan í desember tókst Tottenhm að sigra Portsmouth 3-1 í Úrvalsdeildinni í dag. Mörkin skoruðu þeir Mido(2) og Robbie Keane. Nokkrar breytingar voru gerðar á liðini frá síðasta leik, Edman, Kanoute og Gardner duttu út og inn komu Naybet, Mido og Reid en þeir tveir síðastnefndu léku einnig sinn fyrsta leik fyrir Spurs í dag. Tottenham voru sterkara liðið framan af en það voru Portsmouth sem skoruðu fyrsta markið um miðjan fyrri hálfleikinn. Tottenham héldu samt áfram að sækja og uppskáru mark stuttu eftir að Portsmouth komust yfir. Það var Epyptinn Mido sem skoraði það með skalla eftir fyrirgjöf frá Simon Davies. Staðan var 1-1 í hálfleik en samt höfðu leikmenn Spurs verið mun sterkari en Portsmouth.
Mido var ekki lengi að skora annað mark sitt fyrir Spurs því það kom strax á 57. mínútu eftir góðan undirbúning hjá Jermain Defoe. Mido var tekin útaf stuttu seinna og fékk mikið lof frá stuðningsmönnum Spurs þegar hann gekk af velli. Robbie Keane kom inn á í hans stað og það var hann sem tryggði sigur Spurs stuttu fyrir leikslok. Andy Reid stóð sig mjög vel í leiknum og var mjög virkur í sóknarleik Spurs sem og Simon Davies sem virðist hafa, í augnablikinu, leyst vandamál Spurs á hægri kantinum. En það var Ahmed Mido sem var maður leiksins, tvö mörk í fyrsta leik sínum er draumabyrjun fyrir mann sem hafði ekki verið búinn að skora í langan tíma. OÓJ