Spurs-Leicester 2-1

0
689

Varaliðsleikur
Varaliði Tottenham vann nokkuð samfærandi sigur á varaliði Leicester í gærkvöldi. Limbersky sem er í láni út tímabilið skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið og það gerði einnig El Hamdaoui og sýndi að hann gæti veitt framherjunum fjórum verðuga keppni um sæti í framlínunni. Annars léku leikmenn Tottenham allir vel og fékk Emil sem var að leika sinn fjórða leik þá umsögn að hann hafi leikið sinn besta leik til þess. Hann hefur reyndar verið notaður vinstra meginn á miljunni enn ekki sem kantari í flestum þessara leikja.
Liðið: Eyre, Ifil, McKie, Defendi, O’Donoghue, Ricketts, Hallfredsson, McKenna, Limbersky, El Hamdaoui, Barnard. Varamenn: Forecast, O’Hara, Lee, Malcolm, Dilevski. HJ