Jafnt í bikarleik

0
777

WBA – Tottenham 1-1
Niðurstaðan í þessum leik varð sú sama og í deildarleiknum snemma á tímabilinu. Ég hafði vonaða að sá bati sem hefur verið á okkur nægði til að koma okkur áfram en það verður að segja að West Brom hefur verið að taka sig á eftir að Bryan Robson tók við þeim.  Þá gerði Jol sex breytingar á liðinu frá síðasta leik. Naybet, Pamarot og Mendes voru hvíldir. Í þeirra stað komu Kelly, Brown og Gardner sem þótti eiga slakan dag. Þá kom Davies inn í liðið í fyrsta sinn síðan 6. nóvember. Atouba tók sæti Zieglers sem er meiddur og Kanoute var í framlínunni sem þýddi að Keane var á bekknum. Jol var væntanlega með leikinn við Bolton á þriðjudag í huga með þessari uppstillingu. Leikurinn var jafn þar sem WBA átti meira í fyrri hálfleik en við í seinni. Defoe gerði mark okkar úr vítaspyrnu á 31. mínútu. Við mætum þeim 12. febrúar á White Hart Lane aftur til að ákveða hvort liðið fer áfram í fimmtu umferð. Það þýðir að útileikur okkar gegn Charlton frestast.
Liðið: Robinson; Kelly, Edman, King, Gardner; Atouba, Carrick, Brown, Davies (Marney, 75); Kanoute, Defoe (Keane, 75). Varamenn: Fulop, Bunjevcevic, Pamarot. HJ