Fyrsta tapið í þrettán leikjum

0
742

Það er studnum sagt að með hverjum sigri styttist í tap. Í dag gerðist það hjá okkur að sigurganga okkar á heimavelli lauk. Liverpool fór með öll þrjú stigin eftir 0-1 sigur. Það er þó hagt að segja að í raun áttu leikmenn Tottenham ekki skilið að tapa. Jafntefli hefðu verið sanngjörn úrslit. En að leiknum. Jol gerði tvær breytingar frá síðasta leik. Hann varð að hvíla King vegna mars á fæti og kom Davenport inn fyrir hann. Einnig varð hann að taka Berbatov út úr liðinu vegna veikinda. Hann var búinn að vera með upp undir 40 stiga hita en lét sig hafa það að vera á bekknum. Mido sem var ekki orðinn góður af meiðslum sínum var látinn spila aðeins 80% fitt. Það verður væntanlega að skrifa á það klúðrið hjá honum í fyrri hálfleik þegar hann komst einn inn í vítateig og skaut strax skoti sem fór langt yfir og framhjá. Það er ekki hægt að hrósa Zokora sem gaf markið með skelfilegri ákvörðun rétt utan við vítateig. Hann gaf boltan bógstaflega á Gerrard sem reyndi skot sem fór af varnarmanni til Garcia sem skoraði af stuttu færi og spurning hvort bæði Lee og Robinson hefðu getað gert betur í að koma í veg fyrir markið. Eftir að búið var að skipta Mido og Zokora útaf fyrir Berbatov og Murphy þá áttum við leikinn og Liverpool munu örugglega spurja sig hvernig þeir sluppu án þess að fá á sig mörk. En svona er fótboltinn. Ég velti fyrir mér af hverju það er ekki reynandi að láta stráka úr varaliðinu spila í svona leik frekar en að hafa meiddan leikmann í liðinu (Mido) og einn fárveikan á bekknum (Berbatov) þó sá síðarnefndi hafi staðið fyrir sýnu. Mido gerði það ekki og fullfrískur strákur eins og Barcham eða Pekhart hefðu sennilega gert betur.
Liðið:  Robinson, Chimbonda, Dawson, Davenport, Lee; Ghaly, Huddlestone, Zokora (Murphy, 56), Malbranque; Mido (Berbatov, 58), Defoe.
Varamenn: – Cerny; Gardner, Ziegler