Tilkynnt var áðan að búið væri að semja við Lens um að lána til okkar 17 ára miðjumann. Hann heitir Adel Taarabt og þykir eitt mesta efni í Evrópu á hans reki. Ástæðan fyrir því að talað er um að hann sé fenginn að láni er væntanlega vegna reglna vegna aldurs og að hann muni verða fullgildur leikmaður okkar þegar hann nær 18 ára aldri. Hann er sóknar tengiliður sem getur spilað á báðum vængjum og sem framherji. Hann hefur leikið með 16 ára, 17 ára og 18 ára landsliðum Frakka og komst í aðallið Lens fyrir nokkru. Arsenal og Chelsea voru líka að reyna að fá þennan strák í sýnar raðir en hann valdi Tottenham.






