Alnwick kemur og Fulop fer

0
736

Ben Alnwick tvítugur markmaður hjá Sunderland hefur gengið í raðir Tottenham. Marton Fulop hefur farið í hina áttina til Sunderland. Ben hefur leikið með unglingalandsliðum Englendinga. Hann leikur nú með undir 21. árs landsliðinu. Ben komst í lið Sunderland tímabilið 2004-5 þegar þeir voru að spila í "Championship deildinni" og lék svo sjö leiki í Úrvalsdeildinni með þeim á síðustu leiktíð.
Marton Fulop kom til okkar í maí 2004 frá MTK Hungaria. Hann spilaði ekki neinn leik með aðalliðinu en hann hefur verið lánaður til Chesterfield og Coventry ásamt því að hafa verið hjá Sunderland í láni frá því í nóvember. Við óskum honum góðs gengis í framtíðinni.