FA bikar: Cardiff-Tottenham 0-0

0
685

Ekkert lát er á klúðri okkar manna á útivöllum. Í gær sunnudag tóks Tottenham ekki að slá út Meistaradeildarlið (les:annarar deildar lið) Cardiff út á þeirra heimavelli. Jú, aðstæður voru ekki góðar þar sem helli rigndi en það rigndi á bæði lið og það er ekki eins og það hafi verið að rigna í fyrsta skipt. Ekki það að ég held að skilyrðin hafi ekkert haft með þessi úrslit að gera. 

Miðjan var enn einu sinni að klikka. Menn eins og Murphy og Tainio. Hudd átti ekki neinn sérstakan leik en hann er bara of ungur til að eiga að bera upp liðið í langan tíma. Steed stóð sig þokkalega. Jol gerði eina breytingu á liðinu frá síðasta leik. Murphy tók sæti Ghaly sem meiddist í leiknum gegn Portsmouth. Defoe fékk að minnsta kosti tvö góð færi í leiknum en inn vildi boltinn ekki. Leikmenn Cardiff náðu að ógna marki Tottenham þó nokkrum sinnum en skot þeirra á markið voru skelfilega léleg og því þurfti Robinson aldrei að verja skot í öllum leiknum. Að því leiti stóð vörnin sig vel en miðjan hefði átt að gera betur og sóknin svo sem líka. Við ættum að hafa þetta lið þegar þeir koma á WHL í umspilið sem verður í næstu viku. Góðu fréttirnar í þessum leik voru þær að bæði Lennon og Keane voru á bekknum og komu báðir inn á í seinni hálfleik.

Liðið: Robonson, Lee (Gardner 88), Davenport, Dawson, Chombonda, Murphy (Lennon 67), Hudd, Tainio, Defoe (Keane 82), Berbatov. Varamenn: Cerny, Zokora.