King setur stefnuna á endurkomu

0
554

Í viðtali á heimasíðu Tottenham ræðir Ledley King um meiðsli sín og væntanlega endurkomu. Hann segir að hann fari hægar í sakirnar nú og sé að byggja sig upp með því að hlaupa annan hvern dag og synda eða hjóla á æfingarhjóli hina dagana. Hann segir að árangurinn verði metinn eftir fyrstu viku mars og þá ákveðið hvort hann sé tilbúinn að byrja að æfa með aðalliðinu aftur. Verði það raunin vonast hann til að geta byrjað að leika aftur fyrir lok mars.