West Ham-Tottenham 3-4

0
598

Leikmenn Tottenham komu ekki með góðar minningar í þennan leik frá síðasta tímabili. Þá misstu þeir af Meistaradeildarsæti í hendur Arsenal með því að tapa gegn West Ham eftir að meirihluti leikmanna veiktist af vírus. Það hefur alltaf verið grunnt á því góða milli stuðningsmanna þessara liða og þá hlakkað í stuðningsmönnum West Ham og þeir fögnuðu mjög mörkunum sem Arse skoraði í þessari síðustu umferð í fyrra.

Mikið hefur breyst síðan þá. Það leit reyndar út fyrir að West Ham menn ætluðu að endurtaka leikinn því þrátt fyrir 3 fín marktækifæri hjá Berbatov sem Green markmaður þeirra varði vel og ranglega dæmda rangstöðu á Defoe var staðan 2-0 fyrir West Ham í hálfleik. Jol gerði eina breytingu í hálfleik með því að taka út arfaslakann Ghaly og setja inn Huddlestone. Hann átti svo sendingu á Lennon sem vann víti sem Defoe skoraði úr. Skömmu seinna kom sending á Lennon sem hann með einhverjum skríngilegum hætti náði að senda til Tainio sem skaut viðstöðulaust lágan bolta í netið. Nú héldu Spursmenn að leikmenn okkar létu kné fylgja kviði en svo var ekki því næstu mínúturnar voru West Ham meira að sækja og það skilaði þeim svo marki þegar fyrrum leikmaður okkar Zamora skallaðu í netið í sinni fyrstu snertingu á áttugustu og fjórðu mínútu eftir aukaspyrnu Tevez. En þá gerist það ótrúlega að við fáum aukaspyrnu við vítateigslínuna. Hana vann Taarabt ungur miðjumaður sem var að koma inná í fyrsta skipti. Berbatov vildi greinilega ekki vera minni maður en Tevez hjá West Ham sem skoraði beint úr aukaspyrnu í fyrri hálfleik og skoraði frábært mark. Staðan orðin 3-3 og aðeins uppótatíminn eftir. Þegar fjórar mínútur eru liðnar af uppbótatíma þá vinnur Stalteri boltann við vítateigshornið á okkar vallarhelming tekur á rás upp völlinn og sendir svo á Defoe. Defoe fer upp að vítateig og skítur á markið, Green ver en boltinn féll fyrir Stalteri sem hafði fylgt eftir upp allan völl og átti auðvelt verkefni að setja boltann í netið. Þar með var sigurinn okkar og West Ham í djúpum skí* eða þannig. Framundan er svo Evrópu- og bikarleikir en svo taka við tveir heimaleikir sem er skylda að vinna.
Liðið: Robinson, Chimbonda (Taarabt, 85), Dawson, Gardner, YP Lee, Ghaly (Huddlestone, 46), Jenas (Stalteri, 56), Tainio, Lennon, Berbatov, Defoe. Varamenn: Cerny, Rocha.