Búningar næsta árs frumsýndir

0
601

Tottenham og samstarfsaðili þeirra hvað búninga varðar, Puma, sýndu í dag hvernig búningar næsta leiktímabils munu líta út. Tímabilið mun marka 125 ára afmæli félagsins og endurspegla búningarnir það.

Búningarnir eru fjórir eins og sést á myndinni hér fyrir neðan. Notast verður við alla búningana á tímabilinu en tvískipti búningurinn er sérstakur afmælisbúningur. Hann verður samt notaður í einhverjum leikjum.

Guli búningurinn verður þriðji búningurinn á meðan sá dökkblái verður varabúningur liðsins. Breyting er á aðalbúningnum, hvítar stuttbuxur koma í stað dökkblárra en notast var við hvítar stuttbuxur í UEFA bikarnum á þessu tímabili.

Síðasti leikur Spurs á þessu tímabili er á morgun á White Hart Lane gegn Man City og mun liðið klæðast nýja aðalbúningnum í þeim leik.