Tottenham-Blackburn 1-1

0
558

Fyrir leikinn gat Tottenham tryggt sér Evrópusæti með sigri. Það tókst þó ekki og jafntefli 1-1 varð niðurstaðan. Defoe gerði mark okkar í seinni hálfleik eftir að Blackburn hafði komist yfir í fyrri hálfleik. Tottenham byrjaði betur en gaf svo eftir og leiddi það til þess að Blackburn komst yfir á 32. mínútu. Rétt áður hafði Ghaly komið inn á fyrir Steed sem meiddist. Jol leist ekki á byrjun seinni hálfleiks og brá á það ráð að taka Ghaly útaf en hann hafði ekki komist í takt við leikinn. Keane kom í hans stað og strax breyttist leikur okkar til batnaðar. Á 67. mínútu náðum við að jafna eins og fyrr segir. Bæði lið áttu stangarskot en ekki vildi tuðran inn. Áhorfenda fjöldi á WHL í vetur fór í þessum leik yfir 1. milljón.
Liðið: Robinson, Chimbonda, King, Dawson, Gardner, Lennon, Jenas, Zokora, Steed (Ghaly 28, Keane 59), Defoe, Berbatov. Varamenn: Cerny, Ifil, Huddlestone.