Tottenham-Man. City 2-1

0
612

Með sigri á Man. City tryggði Tottenham sér UEFA sæti á næstu leiktíð og endaði leiktíðina í sama sæti og í fyrra. Verður það að teljast vel að verki staðið eftir að á tímabili virtist sem tímabilið væri svolítið að renna okkur úr greypum. Góður endasprettur sá til þess að liðið verður að teljast hafa tekið framförum frá síðasta ári og búið að festa sig í sessi þarna uppi. Nú verður hinsvegar að stíga næsta skref en það er að komast í Meistaradeildina, en aðeins munaði átta stigum að það tækist. Einn bikar væri svo fínn með FA eða UEFA.
En að leiknum. Keane kom inn í sóknina fyrir Defoe. Aðrar breytingar voru ekki á byrjunarliðinu. Stax á 10. mínútu var Keane búinn að skora. Eftir rúman háltíma leik gerði svo Berbatov annað mark. Ekki tókst okkar mönnum að halda þeirri forustu hvað þá að auka hana. Á 40. mínútu tókst Man. City að minnka muninn en lengra komust þeir ekki og sigur okkar nokkuð öruggur.
Liðið: Robinson, Chimbonda, Dawson, King, Gardner, Tainio, Jenas, Zokora, Lennon (Steed 74), Keane (Defoe 80), Berbatov. Varamenn: Cerny, Ekotto, Huddlestone.